Viðvik ehf 663 8282

Smáverk • Snatt • Reddingar

Verkin sem stóru verktakarnir gefa sér ekki tíma í — við reddum þeim.

Viðvik ehf eru smáverktakar á höfuðborgarsvæðinu. Við klárum smáverk á heimilum, í fyrirtækjum og hjá húsfélögum — smíði, flísar, parket og allt þar á milli. Alltaf á föstu verði.

Fast verð
Verkefni Viðviks ehf — milliloft smíðað að Álhellu í Hafnarfirði

Þjónusta

Við tökum að okkur allt það smálega — og margt af því stærra líka.

Reynslan okkar nær yfir flest það sem kemur upp á heimilum og í fyrirtækjum. Hér eru helstu flokkarnir — ef þú ert ekki viss hvort við getum leyst þitt verk, hafðu samband og við finnum lausn.

01

Smíði og viðhald

Milliloft, hillur, upphengjur, handrið og önnur smíði — bæði ný verkefni og viðgerðir á því sem er farið að láta á sjá.

02

Flísalagnir

Flísar á baðherbergi, í eldhús, á tröppur og aðra fleti. Við sjáum líka um viðgerðir ef flísar hafa losnað eða brotnað.

03

Parket og gólfefni

Skiptum um parket, leggjum ný gólfefni og klæðum gólf á svölum og í sumarbústöðum.

04

Innréttingar

Uppsetning, breytingar og lagfæringar á innréttingum í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi — allt frá smíði til málunar.

05

Svalir og útisvæði

Pallasmíði, viðgerðir á handriðum, klæðning á veggjum og loftum og önnur utanhússverk.

06

Smáverk og reddingar

Upphengjur, hillur, skápar, ljós, speglar og allt það smálega sem þarf að klára.

Húsfélög

Þjónusta við húsfélög

Við þekkjum vel til þeirra verka sem húsfélög þurfa oft að láta vinna — og bjóðum þau alltaf á föstu verði.

Tengiliður húsfélaga

Hjörtur Aðalsteinsson

  • Smíða stokka yfir ruslalúgur og fjarlægja ruslarör úr ruslakompum
  • Þrífa og mála sameign
  • Pússa útihurðir og endurnýja póstkassa
  • Upphengjur fyrir reiðhjól — á veggi eða loft
  • Handrið, tröppur og aðrar viðgerðir utanhúss

Við vinnum alltaf eftir föstum tilboðum.

Þú færð verðið á hreint áður en við byrjum — engin óvænt aukagjöld á reikningnum.

Verkefni

Brot af því sem við höfum verið að gera

Frá milliloftum og eldhúsinnréttingum til baðherbergja, svala og smáverka — hér er úrval nýlegra verkefna.

Milliloft að Álhellu

Milliloft að Álhellu

10 fm milliloft smíðað frá grunni — vandað burðarvirki og gólf klárt til notkunar.

Baðherbergi með marmaraflísum

Baðherbergi með marmaraflísum

Heildarendurnýjun — flísar á veggi og gólf, viðarklætt loft og falin lýsing.

Svart eldhús með subway flísum

Svart eldhús með subway flísum

Innrétting sett upp, subway flísar á vegg og borðplata úr gegnheilum viði pússuð og lökkuð.

Sveigðar svalir klæddar timbri

Sveigðar svalir klæddar timbri

Bekkur og gólf klætt með timbri og innfelld lýsing sett upp.

Tröppur klæddar með timbri

Tröppur klæddar með timbri

Gamlar steyptar tröppur fengu nýtt líf með timburklæðningu og nýju handriði.

Eldhús endurnýjað

Eldhús endurnýjað

Ný innrétting, subway flísar og parket — rýmið gjörbreytt frá grunni.

Baðherbergi í gráum tónum

Baðherbergi í gráum tónum

Sturtuhús, flísar á veggi og gólf og viðarklætt loft með dimmanlegri lýsingu.

Gengið frá borðstofu

Gengið frá borðstofu

Rýmið málað, gólf lagt og allt gert klárt fyrir húsráðendur.

Herbergi smíðað í risi

Herbergi smíðað í risi

Léttir milliveggir og grind smíðuð á rishæð, tilbúið fyrir klæðningu.

Upphengjur fyrir reiðhjól

Upphengjur fyrir reiðhjól

Uppsetning á hjólahengjum í geymslu fjölbýlishúss — sparar mikið gólfpláss.

Fuglafóðrunarhús

Fuglafóðrunarhús

Sérsmíðað hús þar sem kornið rennur sjálfvirkt niður. Pallurinn tryggir að fuglarnir séu öruggir fyrir köttum.

Hjörtur og fjölskyldan — Viðvik ehf

Um okkur

Fjölskyldufyrirtæki sem reddar málunum.

Viðvik er lítið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í smáverkum fyrir heimili, fyrirtæki og húsfélög á höfuðborgarsvæðinu.

Við tökum að okkur verkefnin sem aðrir láta eiga sig — þau sem eru of lítil fyrir stóru verktakana en oft of flókin eða tímafrek fyrir heimilisfólkið. Snatt, snúningar og reddingar eru okkar fag.

Við vinnum eingöngu eftir föstum tilboðum. Það þýðir að það er engin óvissa um verðið — þú veist nákvæmlega hvað verkið kostar áður en við byrjum.

Staðsetning
Reykjavík 105
Sérgrein
Smáverk
Verðlagning
Fast verð
Fast verð

Hafðu samband

Ertu með verkefni fyrir okkur?

Hringdu eða sendu okkur póst með stuttri lýsingu — helst með mynd. Við svörum eins fljótt og við getum og gefum þér fast tilboð áður en við hefjumst handa.

Sími
663 8282
Tölvupóstur
hitti@internet.is
Staðsetning
Reykjavík 105 — við þjónustum höfuðborgarsvæðið